Jónas spilar Mozart og Schumann

Jónas Ingimundarson, píanó

Það var enginn annar en Jónas Ingimundarson, píanóleikari sem lauk fyrstu stofutónleikaröð Gljúfrasteins með því að leika á flygilinn. Jónas er ekki ókunnugur flyglinum á Gljúfrasteini. Á tónleikunum lék Jónas verk eftir Mozart og Schuman.

Jónas Ingimundarson stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Jónas hefur síðan starfað sem píanóleikari, tónlistarkennari og kórstjóri. Hann hefur haldið fjölda tónleika á Íslandi og komið fram víða í Evrópu og Bandaríkjunum, ýmist einn eða með öðrum, einkum söngvurum. Jónas hefur leikið inn á fjölda hljómplatna og hljómdiska og hefur staðið fyrir öflugu tónlistarkynningarstarfi í tengslum við tónleikahald sitt. Jónas hefur fengið listamannalaun og notið starfslauna listamanna og hlotið margvíslegar viðurkenningar, svo sem heiðursverðlaun VÍS, Íslandsbanka og DV og heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna 2001, þegar þau voru veitt í fyrsta sinn. Jónas Ingimundarson var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1994 og Dannebrog orðunni árið 1996. Árið 2004 var Jónas valinn heiðurslistamaður Kópavogs. Jónas er tónlistarráðunautur Kópavogs.

Efnisskrá:

Wolfgang Amadeus Mozart: Sónata í A dúr KV 331 (1756 - 1791)

Robert Schumann: Papillion op. 2 (1810 - 1856)