Auður

Auður Sveinsdóttir fæddist á Eyrarbakka þann 30. júlí árið 1918 og voru foreldrar hennar Sveinn Guðmundsson járnsmiður og Halldóra Jónsdóttir, starfskona á sýsluskrifstofunni á Eyrarbakka. Árið 1925 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur þar sem Auður ólst upp í hópi svipmikilla systra, þeirra Ásdísar gullsmiðs og Fríðu píanókennara. Eftir gagnfræðipróf hóf Auður störf á röntgendeild Landspítalans. Nokkrum vikum áður en heimstyrjöldin síðari skall á byrjuðu Auður og Halldór að dragast hvort að öðru. Þau voru bæði stödd á Laugarvatni þegar liðið var á ágúst og í göngutúr eitt kvöldið voru forlögin ráðin, eins og Auður orðaði það í bókinni Á Gljúfrasteini sem Edda Andrésdóttir tók saman og kom út síðla árs 1984. Auður og Halldór fluttu á Gljúfrastein á aðfangadag 1945 sama dag og þau gengu í hjónaband og héldu þar heimili alla tíð síðan.

Auður gegndi mörgum störfum í gegnum tíðina, bæði í atvinnulífinu og heima við, þrátt fyrir að þekktasta hlutverk hennar nú á dögum sé sennilega að vera eiginkona Halldórs Laxness og húsfreyja á Gljúfrasteini. Hún hafði mikinn áhuga á hannyrðum og sköpun, skrifaði greinar í kvennatímarit og lá ekki á skoðunum sínum.

Haustið 2014 stóð yfir sýningin Auður á Gljúfrasteini Fín frú, sendill og allt þar á milli í Listasal Mosfellsbæjar. Þar var leitast við að varpa ljósi á hin margvíslegu störf og hlutverk sem Auður tók að sér í gegnum tíðina.