Upplestur 4. desember: Ljósagangur, Kákasusgerillinn, Máltaka á stríðstímum og Þetta rauða, það er ástin
29/11 2022Á aðventunni lesa höfundar upp úr nýjum bókum á Gljúfrasteini. Jólabókaflóðið er aldeilis spennandi í ár og Gljúfrasteinn fer ekki varhluta af því. Annan sunnudag í aðventu, þann 4. desember, munu eftirtaldir höfundar lesa upp úr verkum sínum:
Dagur Hjartarson - Ljósagangur
Jónas Reynir Gunnarsson - Kákasusgerillinn
Natasha S. - Máltaka á stríðstímum
Ragna Sigurðardóttir - Þetta rauða, það er ástin
Upplestrar fara fram á hverjum sunnudegi á aðventunni klukkan 15. Dagskráin stendur í klukkutíma. Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin.
Njótum aðventunnar á Gljúfrasteini.

Dagur, Ragna, Jónas Reynir og Natasha lesa upp á Gljúfrasteini sunnudaginn 4. desember.