Auður Jóns, Áslaug Agnars, Sverrir Norland og Steinunn Sigurðar / Ólafía Hrönn
05/12 2023Á aðventunni lesa höfundar upp úr verkum sínum í stofunni á Gljúfrasteini. Upplestrar fara fram fjóra sunnudaga fyrir jól enda er fátt notalegra í skammdeginu en að hlýða á góðar bókmenntir.
Sunnudaginn 10. desember munu eftirtaldir höfundar lesa upp úr verkum sínum:
Auður Jónsdóttir - Högni
Áslaug Agnarsdóttir, þýðandi - Gráar býflugur (e. Andrej Kúrkov)
Steinunn Sigurðardóttir - Ból (Ólafía Hrönn Jónsdóttir, leikkona les upp úr bókinni)
Sverrir Norland - Kletturinn
Dagskráin hefst kl. 15 og stendur í um klukkustund. Frítt er inn á viðburðinn. Öll hjartanlega velkomin, sjáumst á Gljúfrasteini.
Hér má sjá dagskrá aðventuupplestranna í heild sinni.
_800_450.png)
Sverrir Norland, Steinunn Sigurðardóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Áslaug Agnarsdóttir ásamt Andrej Kúrkov og Auður Jónsdóttir.