Verk eftir Stravinsky og Schumann í stofunni á Gljúfrasteini

Nicola Lolli, konsertmeisari Sinfóníuhljómsveitar Íslands leikur ásamt Bjarna Frímanni Bjarnasyni sem er meðal annars aðstoðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, verk eftir Stravinsky og Schumann fyrir fiðlu og píanó í stofunni á Gljúfrasteini næstkomandi sunnudag, 9.júní.
 

Stofutónleikar Gljúfrasteins eru haldnir hvern sunnudag frá 2. júní til 25. ágúst og hefjast þeir kl. 16:00.
Miðar eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs og kosta 2500 kr. Ókeypis er fyrir börn á leikskólaaldri.

Til baka í viðburði