Jóel Pálsson og Davíð Þór á síðustu stofutónleikum sumarsins.

Félagarnir Jóel Pálsson saxófónleikari og Davíð Þór Jónsson píanóleikari leika á stofutónleikum Gljúfrasteins 25.ágúst.  Efnisskráin er frumsamin af þeim félögum og verður m.a. flutt glænýtt verk byggt á verkum Laxness sem Davíð Þór samdi sérstaklega fyrir þetta tilefni.

Stofutónleikar Gljúfrasteins eru haldnir hvern sunnudag frá 2. júní til 25. ágúst og hefjast þeir stundvíslega kl. 16:00. Miðar eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs og kosta 2500 kr. Ókeypis er fyrir börn á leikskólaaldri. 

Dagskrá stofutónleikanna má sjá í heild sinni hér

Til baka í viðburði