Safnið í sófann

31/03 2020

Stofan á Gljúfrasteini 

Gljúfrasteinn og önnur söfn á landinu eru lokuð vegna samkomubanns. Starfsfólk situr þó ekki auðum höndum og hefur síðustu daga bætt ýmsu við á vefsíður til að gleðja og stytta fólki stundir.  Það á líka við um samfélagsmiðla og hægt að finna ýmsilegt undir myllumerkinu #safniðísófann 

Á vef Gljúfrasteins er að finna mikinn fróðleik um ævi og verk Halldórs Laxness og um fjölskylduna sem bjó á Gljúfrasteini. Einnig er þar hægt að skoða hannyrðir Auðar Laxness og prjónauppskriftir hennar, hér er til dæmis uppskrift Auðar að garðaprjónapeysu með ílepparósum 

Á vefnum innansveitarkronika.is er hægt að hlusta á upplestur Halldórs Laxness á Innansveitarkroniku en í ár eru liðin 50 ár frá því að bókin kom út. Þar er einnig hægt að finna rafbókina.   Á vefnum er líka fróðleikur um sögusviðið og persónur sögunnar. Vefurinn um Innansveitarkroniku er samstarf Gljúfrasteins, Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Forlagsins, Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og fjölskyldu Halldórs Laxness.

Innansveitarkronika kom út í september árið 1970 og sagði þá í bókakynningu að sagan væri rituð ,,af snillingi skáldsögunnar að skemmta sjálfum sér”.