15.12.2009 | 14:58

Síðustu upplestrar fyrir jól á Gljúfrasteini næsta sunnudag

Upplesarar á Gljúfrasteini 13. desember 2009

Sólveig Arnardóttir, Sigurður Pálsson, Eyþór Árnason og Vilborg Davíðsdóttir eftir upplestur á Gljúfrasteini 13. desember.

Síðasta sunnudag aðventunnar, 20. desember, munu Huldar Breiðfjörð, Bergsveinn Birgisson, Páll Valsson og Óskar Guðmundsson slá lokahnykkinn í aðventuupplestraröð Gljúfrasteins fyrir þessi jól og lesa úr verkum sínum í stofu skáldsins.

 



Sunnudagur 20. desember
Huldar Breiðfjörð – Færeyskur dansur ferðalýsing
Bergsveinn Birgisson - Handbók um hugarfar kúa 
Páll Valsson - Kona verður forseti    
Óskar Guðmundsson - Snorri    


Aðgangur er ókeypis og tekið verður hlýlega á móti gestum. Upplestrarnir hefjast kl. 16:00. Allir velkomnir.