Frítt inn á sumardaginn fyrsta
21.04 2026
Sumarið er á næsta leiti. Af því tilefni verður frítt inn á safnið á afmælisdegi Halldórs Laxness, fimmtudaginn 23. apríl.
Klukkan 15 mætir Varmárkórinn og syngur valin lög í stofunni. Sungin verða íslensk lög, mörg hver með textum eftir Halldór Laxness.
Hlökkum til að sjá sem flesta. Öll velkomin.
Gott er að leggja bílum við Jónstótt, því bílastæðin við Gljúfrastein eru fljót að fyllast.
Gljúfrasteinn á sumardegi