Hvernig er söknuður á litinn?
15/06 2026Rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Gunnar Randversson og gítarleikarinn Þórólfur Stefánsson flytja dagskrá með ljóðalestri og gítartónlist á Gljúfrasteini sunnudaginn 21. júní kl. 16.
Gunnar les ljóð úr bók sinni Hvernig er söknuður á litinn? og Þórólfur leikur tónlist, meðal annars eftir Chopin, Satie, J.S. Bach og Gunnar Randversson.
Þórólfur Stefánsson er gítarleikari, búsettur í Svíþjóð. Hann stundaði framhaldsnám hjá prófessor Rolf LaFleur við Tónlistarháskólann í Stokkhólmi og lauk prófi frá Stockholms Musikpedagogiska Institut árið 1994. Þórólfur hefur komið fram víða á Norðurlöndunum, bæði sem einleikari og með hljómsveitum. Íslensk tónskáld hafa samið verk fyrir hann til frumflutnings og Gitarissimo Publications í Stokkhólmi hefur gefið út íslensk þjóðlög í útsetningum og umritunum hans.
Gunnar Randversson er rithöfundur og tónlistarmaður búsettur í Reykjavík. Hann útskrifaðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1985. Gunnar hefur starfað í áratugi sem píanó- og gítarkennari, auk þess að semja tónlist. Hann hefur gefið út tvo geisladiska með eigin tónlist og annarra. Einnig hafa komið út eftir hann sex ljóðabækur og eitt smásagnasafn. Bókin Hvernig er söknuður á litinn? er nýjasta bók hans og fjallar um söknuð og sorg vegna fráfalls barnabarns.
Öll eru hjartanlega velkomin. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og aðgangseyrir er 3.900 krónur. Miðar eru seldir í afgreiðslu Gljúfrasteins.
Þórólfur Stefánsson og Gunnar Randversson