TTT jazztríó á Gljúfrasteini

09/06 2026

Næsta sunnudag bregður á leik flunkunýtt tríó á stofutónleikum í Gljúfrasteini þar sem nafnarnir Tumi Torfason og Tumi Árnason þeyta í lúðra og Tómas Jónsson leikur á alls oddi á flygli nóbelskáldsins og eflaust hinum ýmsu hljómborðshljóðfærum. Hér eru á ferðinni þrír hljóðfæraleikarar úr íslensku jazzsenunni sem hver fyrir sig leiðir og tekur þátt í ótal verkefnum þar sem leiðir þeirra hafa oft legið saman en hér debútera þeir í þessari nýju samsetningu. Á efnisskránni verða vel valin tökulög og verk úr þeirra eigin smiðju.

Tumi Torfason : trompet
Tumi Árnason : tenór saxófónn
Tómas Jónsson : flygill og fleira

Verið hjartanlega velkomin á tónleikana sunnudaginn 14. júní klukkan 16. Aðgangseyrir er 3.900 kr. og eru miðar seldir í afgreiðslu Gljúfrasteins á tónleikadegi.
Hér eru upplýsingar um staðsetningu safnsins, aðgengi og bílastæði.

Hér eru upplýsingar um alla stofutónleika Gljúfrasteins 2026.

– – – –

Tumi Torfason (f. 1996) er trompetleikari og tónskáld sem lifir og hrærist í íslensku tónlistarsenunni. Þar leiðir hann ýmis verkefni sem öll hverfast um frumsamda tónlist og spuna út frá henni. Hans helsti áhugi í tónlistarsköpun eru ólíkar samsetningar hljóðfæra og spunatónlistarmanna sem væntanleg debútplata hans „Torfær tími” sýnir greinilega. Hún inniheldur frumsamda tónlist fyrir ólíka hópa allt frá dúó upp í stórsveit. Hann hefur nýtt ótal tækifæri til að brjótast út úr hefðbundinni fagurfræði jazzins og innleitt hljóðfæri og áhrif úr ýmsum áttum en þá sérstaklega úr klassískri tónlistarsögu. Auk hljómsveita sem koma fram undir hans eigin nafni má til dæmis nefna blásaraflokkinn Tu Ha? Tu Bjö!, dúó hans með Bjarna Má Ingólfssyni gítarleikara og kvartettana Bjarma og Strandir.

Í vor tók hann hinsvegar fyrir tökulög þegar hann steig á stokk með saxófónsveit sinni „Línuleg saxskrá” og lék þjóðkunn útvarps- og sjónvarpsstef úr línulegri dagskrá Ríkisútvarpsins fyrir troðfullum sal. Auk sinna ótal jazzverkefna hefur hann meðal annars skrifað tónverk fyrir Björgu Brjánsdóttur flautuleikara, Stórsveit Reykjavíkur, Sigga strokkvartett, hinn þýska brasskvartett Apparat og nú Caput sem flutti nýverið útskriftarverk hans að loknu meistaranámi í tónsmíðum, Klasa.

Sem flytjandi hefur hann meðal annars leikið með Los Bomboneros, Watachico, Tuma Árnasyni, Söru Mjöll, Rósu Guðrúnu, Baldvin Snæ Hlynssyni og Stórsveit Reykjavíkur, til viðbótar við þau ótal verkefni utan jazzsenunnar sem hann hefur einnig lagt lið. Þar mætti til dæmis nefna Salóme Katrínu, Unu Torfa, Rakel, Nönnu, Of Monsters and Men, Sölku Sól, Amabadama, Friðrik Ómar, Júníus Meyvant, Kára Egilsson, Bear the Ant, Spouses, Flesh Machine, Ara Árelíus, Axel Flóvent, Moses Hightower, Skúla Mennska, Ívar Klausen o.fl. Um þessar mundir leikur Tumi einnig í söngleiknum Kabarett í Þjóðleikhúskjallaranum.

Tumi nam jazzhljóðfæraleik við Tónlistarskóla FÍH og Konunglega tónlistarháskólann KMH í Stokkhólmi en í ár lýkur hann meistaranámi í hljóðfæratónsmíðum við Listaháskóla Íslands.

– – –

Tumi Árnason (f. 1991) er tónskáld og saxófónleikari. Hann hefur á ferli sínum komið
víða við innan íslensku tónlistarsenunnar og brúað bil milli ólíkra strauma tónlistarheimsins, jafnt innan framsækinnar samtímatónlistar, spuna, jazz- og dægurtónlistar. Hann hefur komið fram með mörgum skærustu stjörnum íslensks tónlistarlífs og leikið inn á aragrúa hjómplatna með fólki úr öllum áttum.

Tumi hefur undir eigin nafni gefið út þrjár hljómplötur sem hafa allar fengið framúrskarandi viðtökur, þar á meðal plötuna Hlýnun, sem hlaut sex tilnefningar á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021 og var valin tónsmíð ársins. Hann hefur einnig gefið út tvær plötur með dúettum með Magnúsi Trygvasyni Eliassen, nú síðast Gleypir tígur gleypir ljón árið 2023.

Útskriftarverk hans, SÓLVERK (50') fyrir blandaða spunasveit, var flutt á lokakvöldi Jazzhátíðar Reykjavíkur 2024 við glimrandi undirtektir áhorfenda og gagnrýnenda. „A jagged, fierce and thunderous piece full of rhythmic intensity“ skrifaði gagnrýnandi í hið virta tímarit Jazzwise.

Sem tónskáld hefur hann m.a. samið verk fyrir stærri hópa á borð við Stórsveit Reykjavíkur og Kammersveit Reykjavíkur og allt niður í einleiksverk, nú síðast fyrir Ondes Martenot Magnúsar Jóhanns á Myrkum Músíkdögum 2026. Tumi hefur komið að kvikmynda- og leikhústónlist bæði sem flytjandi og tónskáld, og samdi m.a. tónlist fyrir leikverkið Ást Fedru eftir Söruh Kane.

– – –

Tómas Jónsson útskrifaðist frá tónlistarskóla FÍH með burtfararpróf árið 2012 í rytmísku píanónámi. Hann hef unnið sem atvinnutónlistarmaður síðastliðin 15 ár, bæði með ýmsum hljómsveitum sem meðlimur eða „sessjón“ tónlistarmaður. Hann hefur starfað mikið í hljóðverum í tónlistarverkefnum af ýmsum toga. Tómas hefur sérhæft mig í ýmisskonar hljómborðsleik. Algengustu hljóðfærin fyrir utan píanó eru rafpíanó (Rhodes, Wurlitzer), rafmagnsorgel (Hammond, Farfisa), Hljóðgervlar (Moog, Roland, Korg o.sv.fr.).

Hann er starfandi meðlimur í hljómsveitinni AdHd ásamt því að vera meðlimur í hljómsveit Júníusar Meyvants og í hljómsveit Jónasar Sigurðssonar. Hann hefur túrað heiminn með að auk ofannefndum Ásgeiri Trausta og Nönnu Bryndísi. Tómas hefur leikið inn á fjöldann allan af hljómplötum í mismunandi stílum. Tómas hefur komið að tónlist í leiksýningum, samið, útfært, hljóðritað og flutt ýmist í Þjóðleikhúsinu eða Borgarleikhúsinu.

Hann gaf út hljómplötuna 'Tómas Jónsson' árið 2016 og var hún í kjölfarið tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins í opnum flokki. Lucky Records völdu plötuna eina af þrem bestu plötum þess árs ásamt plötum Jóhanns Jóhannssonar og Gyðu Valtýsdóttur. Hann gaf út, ásamt Lucky Records, plötuna 'Tómas Jónsson 3' árið 2020 og fékk hún ljómandi lof. Platan Garmur leit dagsins ljós 2024 og dúóplata Tómasar og Magnúsar Trygvasonar Eliassen, Bilað er best, sama ár. Hljómplatan 'Tómas Jónsson 2' kom út 2025. Tómas gaf út plötuna Gúmbó nr. 5 2025 og hlaut hún tilnefningu íslensku tónlistarverðlaunanna sem jazzplata ársins ásamt titillagi plötunnar sem hlaut tilnefninguna lag ársins í jazzflokki. Önnur dúóplata hans og Magnúsar, Best á flest – Sounds of America, kom út 2025 og hlaut tilnefningu íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins í annarri tónlist. Einnig hefur hann með hljómsveitinni AdHd gefið út plöturnar AdHd 7, AdHd 8 og AdHd 9 og AdHd 10 er væntanleg 2026. Tómas hlaut íslensku tónlistarverðlaunin sem jazzflytjandi ársins árið 2026.