Gissur Páll og Árni Heiðar hefja stofutónleikaröð sumarsins
07/06 2026Stofutónleikaröð Gljúfrasteins fagnar tuttugu ára afmæli í ár. Á fyrstu stofutónleikum sumarsins, sunnudaginn 7. júní, munu þeir Gissur Páll Gissurarson og Árni Heiðar Karlsson koma fram saman í fyrsta sinn á Gljúfrasteini. Þeir félagar hafa starfað saman í tæp tuttugu ár. Nándin á milli áheyrenda og flytjenda á tónleikum sem þessum er einstök og töfrandi. Gljúfrasteinn fyllist enn á ný þeirri hlýju og gleði sem Auður og Halldór sköpuðu á sínum ófáu stofutónleikum. Gissur Páll og Árni Heiðar munu flytja nokkur af sínum eftirlætis einsöngslögum við texta Halldórs Laxness og fleiri ljóðskálda.
Gissur Páll Gissurarson flutti til Ítalíu árið 2001, að loknu námi við Söngskólann í Reykjavík, og stundaði söngnám næstu fjögur ár við Conservatorio G.B. Martini í Bologna undir handleiðslu Wilma Vernocchi. Að því loknu sótti hann einkatíma hjá Kristjáni Jóhannssyni. Frumraun hans á sviði var titilhlutverkið í Oliver Twist, þá aðeins ellefu ára, en sín fyrstu skref á ítölsku óperusviði steig hann árið 2003 sem Ruiz í óperunni Il Trovatore eftir Verdi. Síðan þá hefur hann sungið fjölda óperuhlutverka á Ítalíu og hérlendis og þar með í eftirminnilegu hlutverki Rodolfo í La bohème. Gissur Páll hefur sungið messur og óratóríur frá barrokk og klassíska tímabilinu og kemur oft fram með kórum sem einsöngvari. Árið 2006 tók hann þátt í tveimur söngkeppnum á Ítalíu og vann til verðlauna í þeim báðum. Gissur Páll hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngvari ársins 2012 í flokki Sígildrar og samtímatónlistar.
Árni Heiðar Karlsson hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi síðustu tvo áratugina, sem píanóleikari, meðleikari með söngvurum og öðrum hljóðfæraleikurum, sem tónskáld og hljómsveitarstjóri, í leikhúsum og kvikmyndum. Hann hefur gefið út tvær sólóplötur með eigin tónsmíðum, Q (2001) og Mæri (2009) sem báðar voru tilnefndar til Íslensku tónlistarverðlaunanna, og er sú þriðja væntanleg í haust. Árni Heiðar hóf nám í píanóleik í Tónmenntaskóla Reykjavíkur, þá lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík þaðan sem hann útskrifaðist árið 2000 undir handleiðslu Halldórs Haraldssonar. Framhaldsnám í klassískum píanóleik stundaði hann hjá píanóleikaranum Martino Tirimo í London og við Háskólann í Cincinnati í Bandaríkjunum þaðan sem hann útskrifaðist með meistaragráðu árið 2003. Samhliða þessu lauk Árni Heiðar burtfararprófi frá djassdeild FÍH 1997 og stundaði framhaldsnám í djasspíanóleik við Listaháskólann í Amsterdam veturinn 1997-98 þar sem hann naut leiðsagnar djasspíanistans Rob Madna.
Við hlökkum til að njóta ljúfra tóna með ykkur í stofunni á Gljúfrasteini næsta sunnudag, 7. júní, klukkan 16:00.
Aðgangseyrir er 3.900 kr. og eru miðar seldir í afgreiðslu Gljúfrasteins á tónleikadegi.
Hér eru upplýsingar um stofutónleikaröð Gljúfrasteins 2026