Maístjarnan

01.05 2025

"Kvæðið er ort að mig minnir rétt fyrir 1. maí 1937 og prentað nafnlaust á kápu æskulýðsblaðs þann dag." skrifar Halldór í Kvæðakverið.  

Það sama ár kom fyrsti hluti skáldsögunnar Heimsljós sem gefin var út í fjórum hlutum á árunum 1937-40. Halldór Laxness dregur þar upp mynd af alþýðuskáldinu, Ólafi Kárasyni Ljósvíkingi sem lendir á milli tveggja stjórnmálaafla og hatrömum stéttaátökum í þorpinu sem hann bjó. Skáldið fær lítinn tíma og næði til að iðka hugleiðingar sínar og skáldskap. En Halldór leggur honum þó í munn ljóðið fræga Maístjörnuna. Jón Ásgeirsson samdi lag við ljóðið  fyrir uppsetningu Þjóðleikhússins á Húsi skáldsins árið 1981. 

Maístjarnan

Ó hve létt er þitt skóhljóð, 
ó hve lengi ég beið þín, 
það er vorhret á glugga, 
napur vindur sem hvín. 
En ég veit eina stjörnu, 
eina stjörnu sem skín 
og nú loks ertu komin, 
þú ert komin til mín. 
 
Það eru erfiðir tímar, 
það er atvinnuþref, 
ég hef ekkert að bjóða, 
ekki ögn sem ég gef 
nema von mín og líf mitt, 
hvort ég vaki eða sef, 
þetta eitt sem þú gafst mér, 
þar er allt sem ég hef. 

En í kvöld lýkur vetri 
sérhvers vinnandi manns 
og á morgun skín maísól, 
það er maísólin hans. 
Það er maísólin okkar, 
okkar einingarbands, 
fyrir þér ber ég fána 
þessa framtíðarlands. 

Einar Olgeirsson, Halldór Laxness og Steingrímur Aðalsteinsson á Akureyri sumarið 1937.