Afmælisfögnuður Íslandsklukkunnar

01.06 2026

Það var kátt á Gljúfrasteini síðustu helgi maí mánaðar þegar áttatíu ára útgáfuafmæli Íslandsklukkunnar var fagnað með stórkostlegu upplestrarmaraþoni. Upplesturinn tókst vel í alla staði og var einstök upplifun og listrænn gjörningur frá upphafi til enda.  Þau sem fengin voru til að lesa eru rithöfundar, leikarar og tónlistarfólk, alls voru þau tuttugu og ; Sólveig Arnardóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Una Torfadóttir, Kristín Ómarsdóttir, Halldór Laxness Halldórsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Björn Thors, Kristín Eysteinsdóttir, Bjarni Jónsson, Haraldur Ari Stefánsson, Sigríður Láretta Jónsdóttir, Friðgeir Einarsson, Edda Arnljótsdóttir, Pétur Gunnarsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Þorsteinn Backmann, Guðrún Gísladóttir, Erling Jóhannesson, Harpa Arnardóttir, Jökull Jónsson og Arnar Dan Kristjánsson. Viðburðurinn gekk afbragðs vel og verður tækifæri til að halda fleiri slíka í náinni framtíð.  

Halldór Laxness Halldórsson, barnabarn skáldsins, las upp úr sinni Íslandsklukku sem árituð er; Til Dóra litla, frá afa. 

Halldór Laxness Halldórsson, barnabarn skáldsins, með áritaða bók frá afa sínum; Til Dóra litla, frá afa.