Aðventuupplestrar á Gljúfrasteini
Frá aðventuupplestri á Gljúfrasteini 2004. Auður Laxness í forgrunni ásamt Jónasi Ingimundarsyni, Þórarni Eldjárn og Halldóri Guðmundssyni
Nú um aðventuna er í sjötta sinn boðið til upplestra rithöfunda úr nýútgefnum bókum. Aðventuupplestrar hafa verið fastur punktur í viðburðaflóru Gljúfrasteins frá opnun haustið 2004 enda andrúmsloftið í stofunni einstakt og tilvalið fyrir slíka andlega næringu í erli komandi vikna.
Næstkomandi sunnudag 29. nóvember lesa Þórarinn Eldjárn, Sindri Freysson, Ragna Sigurðardóttir og Kristín Ómarsdóttir úr nýjum verkum. Dagskráin hefst kl. 16:00, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Dagskráin í heild
29. nóvember
Þórarinn Eldjárn – Alltaf sama sagan
Sindri Freysson - Dóttir mæðra minna
Ragna Sigurðardóttir – Hið fullkomna landslag
Kristín Ómarsdóttir – Hjá brúnni
6. desember
Jón Karl Helgason – Mynd af Ragnari í Smára
Jón Kalman Stefánsson – Harmur englanna
Gyrðir Elíasson – Milli trjánna og Nokkur almenn orð um kulnun sólar
Ingunn Snædal - komin til að vera, nóttin
13. desember
Eyþór Árnason – Hundgá úr annarri sveit
Vilborg Davíðsdóttir – Auður
Sigurður Pálsson – Ljóðorkuþörf
Steinunn Sigurðardóttir – Góði elskhuginn Sólveig Arnardóttir les
20. desember
Huldar Breiðfjörð – Færeyskur dansur ferðalýsing
Bergsveinn Birgisson - Handbók um hugarfar kúa
Páll Valsson - Kona verður forseti
Óskar Guðmundsson - Snorri