Verk mánađarins í október er Brekkukotsannáll
Halldór í vinnuherbergi sínu á Gljúfrasteini.
Framundan er Verk mánaðarins síðasta sunnudag hvers mánaðar í vetur. Vilborg Dagbjartsdóttir ásamt Guðmundi Andra Thorssyni riðu á vaðið síðasta sunnudag og gerðu Kvæðakverið að umfjöllunarefni.
Sunnudaginn 25. október er það Einar Kárason sem mun taka fyrir Brekkukotsannál og 22. nóvember ætlar Haukur Ingvarsson ræða um Guðsgjafaþulu og fleira. Haukur kemur til okkar næst síðasta sunnudag í nóvember.
Líkt og undanfarin ár munu rithöfundar koma og lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum hvern sunnudag á aðventunni. Seinasti sunnudagur nóvembermánaðar er jafnframt fyrsti sunnudagur í aðventu (29. nóvember), þá verður fyrsti jólabókaupplesturinn.
Ofangreindir viðburðir hefjast allir kl. 16. Nánari upplýsingar verða kynntar síðar.
Opið er á Gljúfrasteini frá klukkan 10-17 alla daga nema mánudaga yfir vetrarmánuðina.