Tuttugu tillit til Jesúbarnsins eftir Olivier Messiaen á stofutónleikum Gljúfrasteins
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari mun leika valda kafla úr “Tuttugu tillitum til Jesúbarnsins” á stofutónleikum Gljúfrasteins 2. ágúst.
Að vanda fara tónleikarnir fram í stofu nóbelsskáldsins og hefjast klukkan 16:00. Aðgangseyrir er 500 krónur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
ANNA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR er fædd í Reykjavík. Hún brautskráðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1979 og stundaði Post Graduate-nám við Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum með sérstaka áherslu á kammertónlist og meðleik með söng. Helstu kennarar hennar voru Stefán Edelstein í Barnamúsíkskólanum; Hermína S. Kristjánsson, Jón Nordal og Margrét Eiríksdóttir í Tónlistarskólanum í Reykjavík og James Gibb og Gordon Back í Guildhall School of Music and Drama. Hún hefur starfað á Íslandi í yfir aldarfjórðung við margvísleg störf píanistans, aðallega í samleik ýmiss konar en einnig í einleikshlutverki. Anna Guðný hefur verið píanóleikari Kammersveitar Reykjavíkur um langt árabil. Hún hefur leikið inn á um þrjátíu geisladiska og plötur í samvinnu við ýmsa listamenn. Samstarf hennar og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur sópransöngkonu, hefur staðið síðan á námsárunum í Lundúnum. Hún hefur komið fram á Listahátíð í Reykjavík og leikur reglulega innan raðar Tíbrár-tónleikanna í Salnum í Kópavogi.
Anna var bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2002. Hún kenndi við tónlistardeild Listaháskóla Íslands frá stofnun hennar 2001 til 2005, en það haust var hún ráðin píanóleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2004 sem flytjandi ársins og aftur árið 2009, en þá hlaut hún verðlaunin fyrir flutning sinn á verkinu “Tuttugu tillit til Jesúbarnsins” eftir Olivier Messiaen í september 2008. Geisladiskur með verðlaunaflutningi Önnu á Tuttugu tillitum til Jesúbarnsins er nýkominn út og hlaut hann fimm stjörnur í gagnrýni Morgunblaðsins.
Stofutónleikar Gljúfrasteins eru alla sunnudaga í sumar kl.16, nánar má lesa um dagskrána hér.