21.7.2009 | 15:58

Klassadjass á Gljúfrasteini

Sunna Gunnlaugs og Andrés Þór Gunnlaugsson

Djassistarnir Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikari og Sunna Gunnlaugs píanóleikari leiða saman hesta sína á næstu stofutónleikum Gljúfrasteins.

 

Þau munu flytja sín eigin lög í bland við útsetningar sínar á íslenskum þjóðlögum fyrir píanó og rafgítar. Tónleikarnir hefjast klukkan 16:00, sunnudaginn 26. júlí, og aðgangseyrir er 500 krónur. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Sunna Gunnlaugs hefur haldið tónleika um víða veröld og gefið út fimm hljómdiska. Tónlist hennar brúar djassbilið frá Reykjavík til Brooklyn, með því að fella þokka evrópsks djass við drífandi New York eldmóð.

Andrés Þór Gunnlaugsson hefur gefið út fimm hljómdiska síðastliðin ár í samstarfsverkefnum og undir eigin nafni. Einnig hefur hann starfað sem hljóðfæraleikari við leikhús og í hljóðveri. Andrés hefur leikið tónlist víðs vegar á Íslandi, í Noregi, Hollandi, Luxemburg, Belgíu og Þýskalandi.  

Sjá einnig:
http://www.sunnagunnlaugs.com/
http://www.myspace.com/andresthor