28.4.2009 | 12:15
Ókeypis niðurhal á Atómstöðinni
23. apríl 2009: Undirritun nýs samnings um útgáfu á verkum Halldórs Laxness
Nýr samningur milli erfingja Halldórs Laxness og Forlagsins var undirritaður á afmælisdegi skáldsins 23. apríl síðastliðinn.
Með þessu er tryggt að bækur skáldsins verði til á komandi árum. Í tilefni þess er nú hægt að hala niður lestri Halldórs á Atómstöðinni á heimasíðu Forlagsins.
Einnig hefur smásagnasafnið Sjöstafakverið verið gefið út og er það til sölu á aðeins 499 krónur. Sjöstafakverið kom út árið 1964. Í bókinni er meðal annars sú kunna saga um Jón í Brauðhúsum og Dúfnaveislan en báðar þessar sögur urðu seinna efni í leikrit.