8.4.2009 | 14:01
Páskar á Vesturlandi
Fjölbreyttir viðburðir verða um páskana á Vesturlandi.
Gljúfrasteinn verður með opið frá 10-17 alla páskana og eftir skoðunarferð á safninu er upplagt að halda ferð sinni áfram til dæmis upp í Kjós og Hvalfjörðinn.
Ferðaþjónustuaðilar og sveitarfélög hafa sameinast um að bjóða gestum á Vesturland. Þangað er stutt að fara, stutt á milli og margt að gera.