10.3.2010 | 15:26

Skólaheimsóknir á Gljúfrastein fyrir öll skólastig

Hofstaðaskóli 7. bekkur

Krakkar úr 7. bekk Hofstaðaskóla að skoða svefnherbergi skáldsins

Það er kærkomin tilbreyting fyrir bæði kennara og nemendur að komast út fyrir skólastofuna endrum og sinnum og nota jafnvel önnur skilningarvit: fá að snerta, skynja og upplifa hlutina á annan hátt. Námsferðir að Gljúfrasteini er orðinn fastur liður hjá mörgum skólum og hafa krakkar í hinum ýmsu árgöngum heimsótt safnið í ár.

Á Gljúfrasteini fræðast nemendur um verk og störf Halldórs sem rithöfundar ásamt því að fá innsýn í heimilislífið á Gljúfrasteini í tíð Auðar og Halldórs. Boðið er upp á sérsniðnar heimsóknir fyrir hvert og eitt aldursstig. Nauðsynlegt er að bóka skólaheimsóknir en aðgangur er ókeypis. Nánar má lesa um móttöku skólahópa hér.
Hægt er að bóka og nálgast allar frekari upplýsingar með því að senda tölvupóst á netfangið gljufrasteinn@gljufrasteinn.is eða í síma 586 8066.


Hér má sjá myndband frá skólaheimsókn á miðstigi