27.1.2010 | 14:17

Verk mánaðarins vetur og vor 2010

Helgi Björnsson í Heimsljósi

Helgi Björnsson sem Ólafur Kárason í uppfærslu LR árið 1998.

Verk mánaðarins byrjar aftur í lok febrúar og verður síðasta sunnudag hvers mánaðar fram á vor.

Að þessu sinni ætlum við að einbeita okkur að leikritum byggðum á verkum Halldórs Laxness. Valinkunnt fólk sem hefur unnið við uppsetningu á leikverkum eftir skáldið verður fengið til að stýra spjalli.


Þjóðleikhúsið sýnir í ár tvö leikverk eftir bókum Halldórs Laxness. Gerpla verður frumsýnd í febrúar í leikstjórn Baltasar Kormáks og Íslandsklukkan í apríl í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.


Nánari dagskrá verður auglýst síðar.