8.12.2009 | 11:50
Hundgá úr annarri sveit, Góði elskhuginn, Auður og Ljóðorkuþörf í stofunni 13. desember
Næsta sunnudag, þriðja í aðventu, munu enn koma góðir gestir í stofuna á Gljúfrasteini. Það verður lesið úr sögulegri skáldsögu, ljóðum og skáldsögu. Dagskráin er hér að neðan:
Eyþór Árnason – Hundgá úr annarri sveit
Vilborg Davíðsdóttir – Auður
Sigurður Pálsson – Ljóðorkuþörf
Steinunn Sigurðardóttir – Góði elskhuginn Sólveig Arnarsdóttir les
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Upplestrarnir hefjast þegar gamla klukkan í forstofunni slær fjögur högg eða kl. 16:00.
Dagskrána í heild alla aðventuna má sjá hér.