Verk Svavars Guðnasonar á Gljúfrasteini
Tvö verka Svavars Guðnasonar í stiganum á Gljúfrasteini
Næstkomandi sunnudag 29. nóvember mun Halldór Björn Runólfsson safnstjóri Listasafns Íslands fjalla um verk Svavars Guðnasonar á Gljúfrasteini. Samhliða verður kynning á nýrri bók Kristínar G. Guðnadóttur listfræðings um Svavar Guðnason.
Nú stendur yfir yfirlitssýning í Listasafninu á verkum Svavars Guðnasonar (1909-1988) sem er meðal þekktustu listmálara Íslands og er það ekki síst að þakka nánum tengslum hans við danska abstraktlist á árunum 1936 til 1946, en á þeim árum voru danskir abstraktmálarar í fararbroddi sjálfsprottinnar myndlistar í Evrópu.
Sýningin varpar ljósi á þróun Svavars frá miðjum fjórða áratug liðinnar aldar til þess níunda. Meginmarkmið með sýningunni á list Svavars er að kynna hana fyrir þeim kynslóðum sem fóru á mis við listamanninn í lifanda lífi en þekkja til hans af orðspori. Sýning Listasafn Íslands stendur til 3. janúar 2010.
Gljúfrasteinn á tvö verk á sýningunni en önnur verk Svavars úr eigu Halldórs og Auðar Laxness prýða enn veggi hússins.
Leiðsögn Halldórs Björns um verk Svavars hefst kl. 14:00. Allir velkomnir.