20.11.2009 | 13:34
Svartfugl á þýsku
Gunnar Gunnarsson og Halldór Laxness
Svartfugl Gunnars Gunnarssonar er kominn út í nýrri þýðingu Karls - Ludwig Wetzig í Þýskalandi.
Á vef Sagenhaftes Island má finna viðtal við Karl, auk allskonar efnis sem tengist bókmenntum og íslenskri menningu. En eins og kunnugt er mun Ísland verða heiðursgestur á bókasýningunni í Frankfurt 2011.