Endurmat Skáldatíma: Haukur Ingvarsson og Jón Karl Helgason með verk nóvembermánaðar
Andlitsdrættir samtíðarinnar - Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness
Haukur Ingvarsson verður gestur Gljúfrasteins sunnudaginn 22. nóvember, kl. 16.00. Hann mun halda erindi um Skáldatíma (1963)og í framhaldinu verða umræður þar sem einnig verður vikið að skáldsögunum: Kristnihald undir Jökli (1968), Innansveitarkronika (1970) og Guðsgjafaþula(1972).
Haukur mun fjalla um þessar skáldsögur út frá nýrri rannsókn sinni sem kemur út í bókinni: Andlitsdrættir samtíðarinnar. Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness, en hún er nýtt verk í ritröðinni Íslensk menning. Jón Karl Helgason mun einnig ræða við Hauk um verkin og hvetja gesti til að taka þátt í spjallinu í stofunni á Gljúfrasteini
Haukur Ingvarsson er M.A. í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hann hefur gefið út eina ljóðabók, verið stundakennari við Háskólann og gert fjölda útvarpsþátta um bókmenntir og menningarsögu. Hann vinnur nú sem dagskrárgerðarmaður á Rás eitt.
Nánar um bók Hauks:
„Enda þótt viðamiklar rannsóknir hafi verið gerðar á höfundarverki og ævi Halldórs Laxness hafa síðustu skáldsögur hans, Kristnihald undir Jökli og einkum Innansveitarkronika og Guðsgjafaþula notið takmarkaðrar athygli meðal fræðimanna. Þessi rannsókn Hauks Ingvarssonar brýtur blað og varpar afar áhugaverðu og nýstárlegu ljósi á þróun skáldsins á sjöunda og áttunda áratugnum. Hann fjallar um viðtökusögu þessara skáldsagna og sýnir fram á hvernig hver ritdómari hefur búið sér til eigin mynd af Halldóri og dæmt nýja bók eftir hann út frá henni. Með greiningu sinni á sögunum varpar hann ljósi á þær nýju og merkilegu tilraunir með skáldsagnaformið sem þær fela í sér og stöðu þeirra meðal annarra verka Halldórs. Tengt þessu er endurmat á Skáldatíma, sem flestir hafa túlkað í ljósi uppgjörs skáldsins við sína pólitísku fortíð. Haukur færir sannfærandi rök fyrir því að Halldór geri þar einnig upp við sína póetísku fortíð, þ.e.a.s. félagslegt raunsæi hinna stóru epísku verka sinna, og leggi drög að þeirri fagurfræði sem búi að baki síðustu skáldsögum hans.“
Verk mánaðarins er opinn leshringur sem Gljúfrasteinn stendur fyrir. Verk eftir Halldór Laxness er tekið fyrir í hverjum mánuði sem fólk er hvatt til að lesa. Í lok hvers mánaðar er síðan upplagt að heimsækja Gljúfrastein og taka þátt í spjalli, sem fram fer í stofunni, um verkið. Stofuspjallinu stýra ýmsir valinkunnir bókmenntamenn og konur.
Það eru allir velkomnir á stofuspjallið. Aðgangseyrir er aðeins 500 krónur og það er síður en svo skylda að hafa nýlokið lestri á viðkomandi verkum.