Úr mörgu er að velja í verki nóvembermánaðar
Verk mánaðarins eru fleiri en eitt að þessu sinni.
Verk mánaðarins í nóvember eru fjögur talsins: Skáldatími (1963), Kristnihald undir Jökli (1968), Innansveitarkronika (1970) og Guðsgjafaþula (1972)
Haukur Ingvarsson útvarpsmaður og rithöfundur kemur á Gljúfrastein 22.nóvember og ræðir um verkin út frá sínum rannsóknum, sem eru nýútgefnar í ritröðinni Íslensk menning. Bók hans kallast Andlitsdrættir samtíðarinnar. Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness.
Verk mánaðarins er opinn leshringur sem Gljúfrasteinn stendur fyrir. Upplagt er að heimsækja Gljúfrastein og taka þátt í stofuspjalli um verkið eða njóta þess sem aðrir hafa fram að færa.
Eins og áður segir fer spjall þessa mánaðar fram 22. nóvember, kl:16:00.
Það eru allir velkomnir á stofuspjallið. Aðgangseyrir er aðeins 500 krónur og það er síður en svo skylda að hafa nýlokið lestri á viðkomandi verkum, enda er á nægu að taka í þetta sinn
Nánar um verkin:
Við minnum á að á aðventu vindum við okkar kvæði í kross og kynnum okkur jólabækurnar.
Við fáum til okkar höfunda sem lesa fyrir gesti í stofunni alla sunnudaga fram að jólum. Fyrsti upplesturinn verður 29.nóvember.
Dagská aðventuupplestra er væntanleg þegar nær dregur.