Skólaheimsóknir og vetraropnunartími safnsins
Skólakrakkar í heimsókn
Frá og með 1. september breyttist opnunartími safnsins. Gljúfrasteinn er opinn frá klukkan 10-17 alla daga nema mánudaga yfir vetrarmánuðina.
Skólarnir eru byrjaðir á ný og að sama skapi hafa skólaheimsóknir hafist á Gljúfrasteini. Í þeim fræðast nemendur um verk og störf Halldórs sem rithöfundar ásamt því að fá innsýn í heimilislífið á Gljúfrasteini í tíð Auðar og Halldórs. Boðið er upp á sérsniðnar heimsóknir fyrir hvert og eitt aldursstig. Koma skólahópa verður sífellt vinsælli og hefur verið aukning í þátttöku skóla frá ári til árs. Nauðsynlegt er að bóka skólaheimsóknir en aðgangur er ókeypis. Nánar má lesa um móttöku skólahópa hér.
Við bjóðum félagasamtök, starfsmannahópa og aðra hópa í haustferðum einnig hjartanlega velkomna. Sífellt fleiri félagasamtök og fyrirtæki koma í heimsókn á heimili Nóbelsskáldsins enda er safnið upplagður áningarstaður.
Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir fullorðna en 250 kr. fyrir börn, aldraða og öryrkja.