„Sumarið er fegurst rétt fyrir haustið.“
Einar Jóhannesson og Anna Guðný Guðmundsdóttir
Fjölbreytilegum stofutónleikum Gljúfrasteins lauk 30. ágúst þegar Einar Jóhannesson og Anna Guðný Guðmundsdóttir léku verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Gerald Raphael Finzi. Einar frumflutti einnig spánýtt verk Áskels Mássonar: „Leiftur“.
Stofutónleikar Gljúfrasteins hafa verið alla sunnudaga í júní, júlí og ágúst og eins og geta má nærri hefur kennt ýmissa grasa:
Chrichan Larson réð á vaðið með sellóleik á fyrstu tónleikum sumarsins og lék verk eftir Bach og Zimmermann. Næstur í röðinni kom söngvaskáldið KK, óhætt er að segja að Gljúfrasteinn hafi verið troðinn út úr dyrum þann sunnudag. 21. júní léku Vigdís Klara Aradóttir og Guido Bäumer saxafón dúetta eftir Fournier, Lauba og Hindemith. Dúóið Stemma, skipuð þeim Herdísi Önnu Jónsdóttur víóluleikara og Steef van Oosterhout slagverksleikara, steig á stokk 28. júní og flutti meðal annars íslensk þjóðlög í útsetningu Snorra Sigfúsar Birgissonar. Leikið var á hið forvitnilega steinaspil Páls frá Húsafelli við góðar undirtektir.
Í upphafi júlímánaðar fluttu Sif Tulinius fiðluleikari og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari nokkur af lögum Atla Heimis við ljóð Halldórs Laxness í nýjum búningi, auk þess að leika nokkrar perlur tónbókmenntanna. Hinn ungi og upprennandi gítarleikari Svanur Vilbergsson var á Gljúfrasteini á Íslenska safnadeginum og lék klassísk verk eftir Villa-Lobos, Rodrigo og Jose. Martial Nardeau og Guðrún Sigríður Birgisdóttir léku fjölbreytilega tónlist á þverflautur sínar eftir Bach, Haydn, Migot, Snorra Birgisson og Þorkel Sigurbjörnsson. Jassgeggjararnir Sunna Gunnlaugs og Andrés Gunnlaugsson voru í léttri sveiflu í dagstofunni þegar þau fluttu eigin lög í bland við útsetningar sínar á íslenskum þjóðlögum fyrir píanó og rafgítar í lok júlímánaðar.
Anna Guðný Guðmundsdóttir lék valda kafla úr „Tuttugu tillitum til Jesúbarnsins“ eftir Olivier Messiaen 2. ágúst, en hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir flutning sinn á verkinu í september 2008. Þessu næst flutti Duo-Nor frumsamið efni og þekktar djassperlur, undir áhrifum latín- og sveiflu stíls. Eyjólfur Eyjólfsson tenór söng hið rómantíska verk Dichterliebe eftir Robert Schumann við ljóð Heinrich Heine 16. ágúst, Anna Guðný Guðmundsdóttir lék undir á píanó. Kirstín Erna Blöndal, söngkona og Gunnar Gunnarsson, píanóleikari fluttu tónlist gerða við texta Halldórs Laxness 23. ágúst. Þeim til halds og traust voru Una Margrét Jónsdóttir sem kynnti lögin og sagði sögu þeirra og Hólmsteinn Eiður Hólmsteinsson sem las upp úr verkum Halldórs. Einar og Anna Guðný léku svo á síðustu tónleikum sumarsins undir yfirskriftinni Amadé og eplatré.
Með haustinu tekur við nýr tími viðburða á Gljúfrasteini, dagskrá yfir Verk mánaðarins mun fljótlega líta dagsins ljós.
„Sumarið er fegurst rétt fyrir haustið. Þessvegna hefjast góðu sögurnar meðan enn er sumar og fuglarnir sýngja og sólin hellir geislum sínum yfir láð og lög.“
(Þættir. Fótatak manna. Úngfrúin góða og húsið).