30.7.2009 | 13:13

Auður Sveinsdóttir Laxness, til hamingju með daginn!

Auður Sveinsdóttir, myndin er tekin á bilinu 1936-38

Auður Sveinsdóttir, myndin er tekin á bilinu 1936-38

Auður Sveinsdóttir, fæddist á Eyrarbakka 30. júlí 1918, og er því 91 árs í dag.
Foreldrar hennar voru Sveinn Guðmundsson vélsmiður og Halldóra Jónsdóttir.

Auður segir um móður sína Halldóru: „Mamma var sjálfstæð eins og nútímakonur. Hún hafði alltaf  eitthvað fyrir stafni fyrir utan heimilisstörfin. Hún vann um tíma á sýslumannsskrifstofunni, æfði kóra, söng í kirkjunni og kenndi ensku.” 1



Auður var ekki síður nútímakona en móðir sín, hún vann úti þegar þau Halldór giftu sig 1945. Þá hafði hún unnið á Röntgendeild Landspítalans síðan haustið 1934. Þar gekk hún í öll störf rétt eins hún gerði sem húsfreyja að Gljúfrasteini.
Auður segir frá þegar hún hætti að vinna á Röntgendeildinni 1947: „Þegar ég sá fram á að geta ekki unnið mitt starf fór ég í Handíðaskólann og tók próf sem handavinnukennari og stundaði kennslu um nokkurt skeið við skólann í Mosfellsbænum,“ segir Auður. „Halldór var afskaplega góður með það að hann skipti sér aldrei af því sem ég var að gera,“ segir hún, „heldur hvatti mig frekar til þess að gera það sem mig langaði til. Ég furða mig raunar á því nú í seinni tíð hvað ég gerði mikið. Ég skrifaði t.d. alltaf í kvennablaðið Melkorku og seinna fyrir Hug og hönd. Ég hafði alla mína hentisemi við það, því eins og ég segi var Halldór mikill hvatamaður þess að ég gerði það sem mig langaði til.“ 2



Barabara Bünger Rehbronn réð sig í vist á Gljúfrastein 1960, hún lýsir húsfreyju sinni Auði: „Hún hafði þá gáfu að geta eldað meðfram öðrum störfum. Hún kunni allt og vann mjög hratt. Ég hef aldrei þekkt manneskju sem átti eins auðvelt með eldamennsku og hún. Ef gesti bar óvænt að garði sagði hún kannski: ”Nú bý ég til rúllutertu í hvelli.” og áður en við varð litið var hún búin að þessu. Án hennar hefði verið erfitt að halda þessum háa staðli í heimilishaldinu. Hún var mikil húsmóðir. Hún var líka skotfljót að búa sig uppá, skellti sér bara í bað og í sparifötin og birtist svo glæsileg eins og fuglinn Fönix. Hún hafði einnig gaman af þessu og smitaði allt með sinni miklu kímnigáfu.” 3



Starfsfólk Gljúfrasteins óskar Auði innilega til hamingju með afmælið.



Fyrir áhugasama er hægt að lesa viðtal Fríðu Bjarkar í heild sinni hér.


 


 


Heimildir:


1 Edda Andrésdóttir. 1984. Á Gljúfrasteini: Edda Andrésdóttir ræðir við Auði Sveinsdóttur Laxness. Vaka – bókaforlag, Reykjavík. bls.10
2 Fríða Björk Ingvarsdóttir. 2002. Frjáls í mínu lífi. Viðtal við Auði Laxness. Lesbók Morgunblaðsins, 91.tbl. 20.04.02
3 Vilborg Auður Ísleifsdóttir. 2000. Kafli úr bókinni: Nærmynd af Nóbelskáldi: Halldór Kilijan Laxness í augum samtímamanna. Ritstjóri Jón Hjaltason. Bókaútgáfan Hólar, Akureyri. bls. 146