Þverflaututónar í stofu Nóbelsskáldsins
Guðrún og Martial
Á þessu ári eru liðin þrjátíu ár frá því hjónin Martial og Guðrún stilltu fyrst saman flautur sínar en þau munu leika á þverflautur sunnudaginn 19. júlí næstkomandi kl. 16:00.
Að venju eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Á efnisskránni má finna jafnt verk eftir erlend og íslensk tónskáld, en þau eru Bach, Haydn, Migot, Snorri Birgisson og Þorkell Sigurbjörnsson.
Íslensk tónskáld hafa fært þeim Guðrúnu og Martial stórar gjafir og hafa þau gefið út tvo hljómdiska hjá Íslenskri tónverkamiðstöð með verkum þeirra og aðrir eru í bígerð. Þá hafa þau leikið tvíleikskonserta með Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands en var einnig boðið að leika með hljómsveit í Mexíkó árið 1995 og á næsta ári leika þau tvíleikskonsert Cimarosa með hljómsveit í Póllandi. Þau hafa haldið fjölda tónleika hér heima og erlendis sem dúó en einnig með þekktum píanistum, eins og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur.
Martial Nardeau hóf að læra á flautu níu ára gamall hjá Raymond Pauchet í Tónlistarskólanum í Boulogne sur Mer í Frakklandi. Á næstu árum hélt hann áfram námi í París og vann til margra verðlauna og viðurkenninga. Árið 1982 settist Martial að á Íslandi. Hann hefur síðan starfað í Kammersveit Reykjavíkur og Hljómsveit Íslensku óperunnar, Kammersveit Hallgrímskirkju og leikið með fjölmörgum tónlistarhópum. Hann er fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands og starfar sem kennari við Listaháskóla Íslands. Martial hefur einnig ferðast mikið sem tónlistarmaður og komið fram í um það bil 20 löndum. Hann hefur lagt stund á barokkflautuleik og þar notið leiðsagnar Pierre Séchet. Í rúmlega áratug stóð hann fyrir reglulegum tónleikum á upprunaleg hljóðfæri í Kópavogi.
Guðrún Sigríður Birgisdóttir stundaði nám í flautuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Manuelu Wiesler og lærði svo áfram við Musikkhögskolen í Osló og í Frakklandi. Hún hóf störf á Íslandi árið 1982 sem sjálfstæður flautuleikari og kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarskóla Kópavogs. Hún er nú deildarstjóri við Tónlistarskóla Kópavogs og hefur útskrifað þaðan marga nemendur. Guðrún hóf ung störf sem flautuleikari í Hljómsveit Íslensku óperunnar og leikur þar enn. Hún hefur haldið fjölda einleiks- og kammertónleika, hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og gefið út nokkra geisladiska en einnig leikið á barokkflautu og frumflutt íslensk flautuverk, sem mörg hafa verið samin fyrir hennar tilstuðlan. Hún hefur fengið starfsstyrki sem Bæjarlistamaður Kópavogs og starfslaun íslenska ríkisins.