13.7.2009 | 11:34

Krakkar ráða för

Hluti af Krakkakorti Vesturlands

Krakkar ráða för er samstarfsverkefni níu ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi sem finnst sérstaklega skemmtilegt að taka á móti krökkum!

Ferðalag um Vesturland er frábært ævintýri fyrir krakka og mun Gljúfrasteinn taka vel á móti börnum í allt sumar.


Sérstakt Krakkakort Vesturlands hefur verið útbúið þar sem öll fjölskyldan kynnist landnámsmönnum og víkingum, tröllum og huldufólki, fer í leikfangasafn og á sveitabæ, á heimili skálds, í þjóðgarð, fuglabyggð, að jökli, í sjóferð og lendir í allskyns óvæntum ævintýrum.


Hægt er að nálgast Krakkakort Vesturlands hér á vefnum vesturland.is - þar getur fjölskyldan byrjað að skipuleggja ferðalagið.