7.7.2009 | 14:56

Klassískur gítarleikur á stofutónleikunum á íslenska safnadaginn 12. júlí

Svanur Vilbergsson gítarleikari

Sunnudaginn 12. júlí er íslenski safnadagurinn. Í tilefni dagsins er frír aðgangur að safninu og einnig á stofutónleikana sem hefjast stundvíslega klukkan 16. Að þessu sinni er það Svanur Vilbergsson gítarleikari sem mun spila verk eftir H. Villa-Lobos (1887-1959), J.Rodrigo (1901- 1999) og A. Jose (1902-1936).

Svanur Vilbergsson (1981) hóf ungur gítarnám í Tónlistarskóla Stöðvarfjarðar og Tónlistarskóla Egilsstaða. Sautján ára fór hann til Englands til náms við King Edwards VI menntaskólann í Totnes þar sem kennari hans var Colin Spencer. Þaðan útskrifaðist hann af tónlistar- og líffræðibraut árið 2001. Eftir það lá leið Svans til Barcelona í eins árs einkanám við Escola Luther undir handleiðslu Arnaldar Arnarsonar.


Árið 2002 innritaðist Svanur í bekk Ítalans Carlo Marchione við Tónlistarháskólann í Maastricht, þaðan útskrifaðist hann með Bachelor of Music gráðu vorið 2006. Frá árinu 2006 stundaði Svanur mastersnám við Konunglega Tónlistarháskólann í Haag, þar sem kennari hans var Enno Voorhorst og lauk hann því vorið 2008.


Svanur hefur meðal annars haldið tónleika í Bonnefantensafninu í Maastricht, St. Pancras kirkju í London, King's Chapel í Boston og í Ráðhúsi Reykjavíkur á Menningarnótt. Honum er reglulega boðið ad spila í Casa Eulalia tónleikaröðinni á Mallorca og á nútímatónlistarhátíðinni Klanken Festival í Maastricht. Svanur var valinn til að taka þátt í norsk-íslenska menningarverkefninu Golfstraumurinn fyrir hönd Íslands.


Auk þess að spila tónlist frá barokk, klassíska og rómantíska tímabilinu hefur Svanur mikinn áhuga á samtíðartónlist. Hann frumflutti meðal annars verk eftir spænska tónskáldið Mateau Malondra Flaquer á síðasta ári en verkið er tileinkað Svani. Svanur hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur og þrisvar fengið styrk frá Menningarráði Austurlands.


Safnið er opið alla daga frá 9-17 og eins og áður sagði er ókeypis á tónleikana í tilefni safnadagsins. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.


Dagskrá stofutónleikanna í heild sinni má skoða hér.


Nánari upplýsingar: www.svanurvilbergsson.com