Lög við ljóð nóbelsskáldsins ásamt perlum tónbókmenntanna næsta sunnudag
Sunnudaginn 5. júlí munu Sif Tulinius fiðluleikari og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari flytja nokkur af lögum Atla Heimis við ljóð Halldórs Laxness í nýjum búningi fyrir fiðlu og píanó, auk þess að leika nokkrar perlur tónbókmenntanna.
Sif og Steinunn Birna munu leika lög Atla Heimis við ljóð nóbelsskáldsins sem eru Maríukvæði, Klementínudans og Stríðið. Einnig munu þær flytja verk eftir Gluck, Bach, Paradis, Franck, Chopin og Atla Heimi Sveinsson sem ýmist voru samin eða útsett fyrir fiðlu og píanó.
Að vanda fara tónleikarnir fram í stofu nóbelsskáldsins og hefjast klukkan 16:00. Aðgangseyrir er 500 krónur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Sif Tulinius hóf nám í fiðluleik sjö ára gömul hjá Gígju Jóhannsdóttur og lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1991 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Hún hlaut Fulbright styrk til frekara náms í Bandaríkjunum og lauk B.A. gráðu með láði frá Oberlin College og síðan meistaragráðu frá New York. Sif hefur tekið þátt í fjölda tónlistarhátíða í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan og hefur einnig starfað sem leiðbeinandi á námskeiðum í Bandaríkjunum. Hún hefur tekið virkan þátt í flutningi nútímatónlistar og starfað með ýmsum tónlistarhópum, m.a. Ensemble Modern og CAPUT. Sif hefur á undanförnum árum komið fram á öllum helstu tónlistarhátíðum á Íslandi í flutningi kammertónlistar og einnig sem einleikari með Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sif hefur gegnt stöðu 2. Konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá hausti 2000.
Steinunn Birna kemur fram árlega á fjölmörgum tónleikum, hérlendis og erlendis bæði sem einleikari og meðleikari. Hún hefur gert margar hljóðritanir sem gefnar hafa verið út, meðal annars í samstarfi við Bryndísi Höllu Gylfadóttur, hljómdiskur þeirra "Ljóð án orða" hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 1998. Steinunn Birna stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík, þaðan lauk hún píanókennaraprófi árið 1979 og einleikaraprófi tveimur árum síðar. Hún lauk meistaragráðu frá New England Conservatory of Music í Boston árið 1987. Steinunn starfaði um tíma á Spáni og kom þar fram, bæði sem einleikari og með ýmsum kammerhópum. Hún hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir leik sinn og komið fram á tónleikum og alþjóðlegum tónlistarhátíðum víða um Evrópu. Steinunn Birna starfar við tónlistarflutning og við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún er stofnandi og stjórnandi Reykholtshátíðar sem haldin er árlega.
Stofutónleikar Gljúfrasteins verða alla sunnudaga í sumar kl. 16, nánar má lesa um dagskrána hér.
Gljúfrasteinn er opinn alla daga í sumar frá kl. 9–17.