16.6.2009 | 15:51

Húsfyllir á KK og saxófóndúett næstkomandi sunnudag

Vigdís Klara Aradóttir og Guido Bäumer

Vigdís Klara Aradóttir og Guido Bäumer

Troðfullt var út úr dyrum síðastliðin sunnudag þegar KK lék lög sín fyrir gesti Gljúfrasteins. Um hundrað manns komu sér fyrir á heimili nóbelskáldsins og hlýddu á tónlistarmannin syngja lög sín og ljóð.


Sunnudaginn 21. júní munu tónlistarmennirnir Vigdís Klara Aradóttir og Guido Bäumer leika saxófóndúetta í stofu nóbelsskáldsins. Aðgangseyrir er aðeins 500 krónur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.


Vigdís Klara Aradóttir lærði á klarinett og saxófón og lauk prófum frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún stundaði  framhaldsnám við tónlistarháskólana í Basel og Lausanne í Sviss. Einnig stundaði hún nám á gamalt klarinett við Schola Cantorum Basiliensis um tveggja ára skeið. Þá var Vigdís í tónlistarnámi í Ohio í Bandaríkjunum í einn vetur. Hún hefur m.a. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og í Þjóðleikhúsinu. Haustið 2007 tók Vigdís við stjórnandastarfi hjá nýstofnaðri Skólahljómsveit Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Hún kennir einnig á saxófón við Skólahljómsveit Kópavogs og er verkefnisstjóri “Tónleika á landsbyggðinni” á vegum félaganna FÍT og FÍH.

Guido Bäumer er frá Norður-Þýskalandi og fluttist til Íslands árið 2000. Hann stundaði tónlistarnám í Bremen í Þýskalandi þar sem hann lauk kennaraprófum á bæði saxófón og þverflautu. Framhaldsnám stundaði Guido við Tónlistarháskólann í Basel í Sviss þar sem hann lauk einleikaraprófi með hæstu einkunn og við Bowling Green State University í Ohio í Bandaríkjunum þar sem hann lauk "Artist Certificate". Í Sviss kenndi Guido m.a. við Tónlistarskólann í Luzern og lék  á barítón-saxófón í saxófónkvartettinum "mit links". Guido hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput-hópnum og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og frumflutt verk eftir íslensk tónskáld. Hann kennir við Tónlistarskólann í Kópavogi og við skólahljómsveitir í Reykjavík og í Hafnarfirði.

Á efnisskránni er frumflutningur verkanna Oxydes og Fjórir dúettar eftir Marie-Héléne Fournier, Adria  eftir  Christian Lauba  og Konzertstück eftir Paul Hindemith.

Marie-Héléne Fournier hefur samið mörg verk fyrir óvanaleg hljóðfæri, t.d. saxófóna, hörpu og ýmis konar slagverk. Fournier hefur kennt við tónlistarháskólana í Strassburg, Lyon og París. Christian Lauba kennir tónsmíðar við Tónlistarháskólann í Bordeaux og hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir verk sín. Paul Hindemith var fjölhæfur tónlistarmaður, tónskáld, fræðimaður, lágfiðluleikari og hljómsveitarstjóri. Hann var mikilvirkur kennari sem kenndi við háskóla vítt og breytt um heiminn.

Stofutónleikar Gljúfrasteins verða alla sunnudaga í sumar kl.16, nánar má lesa um dagskrána hér.

Gljúfrasteinn er opinn alla daga í sumar frá kl. 9–17.