4.6.2009 | 10:39

Tónskáld og sellóleikari á Gljúfrasteini


Stofutónleikaröð Gljúfrasteins hefst sunnudaginn 7. júní kl. 16:00 en þá mun Chrichan Larson sellóleikari og tónskáld koma sér fyrir í stofu nóbelsskáldsins og leika verk eftir Bach og Zimmermann.

Aðgangseyrir er aðeins 500 krónur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.


Chrichan Larson starfar sem sellóleikari og tónskáld. Hann lærði í Stokkhólmi en einnig í Basel í Sviss og París, þar sem hann varð síðar meðlimur í Ensemble InterContemporain (EIC). Starf hans í EIC og samvinnan með stjórnanda þess hóps, Pierre Boulez, hafði mikil áhrif á Chrichan, jafnt sem tónlistarmann og tónskáld.


Verkalisti Chrichans spannar allt frá tónlist 16. og 17. aldar til nútíma- og tilraunatónlistar dagsins í dag. Hann er meðlimur í ýmsum tónlistarhópum í Stokkhólmi, þar sem hann er búsettur. Þar á meðal eru hópar sem einbeita sér að flutningi eldri tónlistar á upprunaleg hljóðfæri en aðrir hafa nýja tónlist í brennidepli. Hann kemur gjarnan fram sem gestaleiðari sellódeildar við margar fremstu sinfóníuhljómsveita Skandinavíu, en starfar annars aðallega við kammertónlist.


Stærstur hluti tónverka Larsons er kammertónlist fyrir tónlistarhópa af ýmsum stærðargráðum. Á tónverkalistanum er einnig að finna hljómsveitarverk svo og kvikmyndatónlist. Nýjasta verk Chrichans var frumflutt í Hannover í Þýskalandi í júní 2008, ”Umbebene Gestalt” fyrir básúnu og kammersveit.  Það var skrifað að beiðni sænsku ”Rikskonserterna” og tónlistarhópsins ”Das neue Ensemble”. 


Chrichan hefur áður haldið tónleika á Íslandi. Það var sumarið 1982, en þá lék hann í Norræna húsinu ásamt bróður sínum, Staffan Larson fiðluleikara og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, píanóleikara.


Stofutónleikar Gljúfrasteins verða alla sunnudaga í sumar kl.16, nánar má lesa um dagskrána hér. Gljúfrasteinn er opinn alla daga í sumar frá kl. 9–17.