Kjartan Ragnarsson fjallar um leikgerðir úr Heimsljósi og Sjálfstæðu fólki
Kjartan Ragnarsson
Síðasta Verk mánaðarins verður haldið sunnudaginn 24. maí kl. 16:00. Að þessu sinni stýrir Kjartan Ragnarsson leikstjóri og leikari umræðum um leikgerðir unnar úr verkum Halldórs.
Kjartan er einn reyndasti leikstjóri landsins og hefur sett upp fjölmargar sýningar. Meðal eftirminnilegra sýninga eftir hann má nefna Sjálfstætt fólk, Þrúgur reiðinnar og Land míns föður. Þá hefur hann einnig skrifað leikrit og hefur til dæmis leikrit hans, Blessað barnalán, notið mikilla vinsælda um allt land. Síðustu ár hefur Kjartan gegnt stöðu forstöðumanns Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi og hlotið viðurkenningar fyrir starf sitt þar.
Tvær leikgerðir hefur Kjartan unnið eftir verkum Halldórs Laxness. Fyrri sýningin var unnin úr bókunum Ljós heimsins og Höll sumarlandsins sem eru tveir af fjórum hlutum Heimsljóss. Sú sýning var sýnd við opnun Borgarleikhússins árið 1989.
Seinni sýningin var Sjálfstætt fólk, sýnd í Borgarleikhúsinu veturinn 1999–2000. Þá leikgerð vann Kjartan ásamt konu sinni Sigríði Margréti Guðmundsdóttur. Sjálfstætt fólk var einnig sýnd á heimssýningunni EXPO 2000 í Hannover.
Það verður glatt á hjalla þegar Kjartan sest í stofuna og ræðir um hvernig gekk að aðlaga texta nóbelsskáldsins fyrir leiksviðið. Að vanda er ókeypis inn og allir velkomnir.