2.5.2009 | 17:22

Halldór, Paradísarheimt og Utah

Krapi úr Paradísarheimt

Krapi úr Paradísarheimt eftir Erling Jónsson

Þessa dagana er staddur hér á landi Fred Wood sem er prófessor við Brigham Young háskólann í Utah. En hann er að rannsaka tengsl Halldórs Laxness við mormóna þar í landi. Hann hefur m.a. heimsótt Gljúfrastein í heimildaöflun sinni.


Þegar Halldór vann að Paradísarheimt ferðaðist hann til Utah í Bandaríkjunum til að afla sér heimilda fyrir bókina. Hann komst þar í kynni við ýmsa og stóð í bréfaskriftum við einhverja af þeim sem hann kynntist.

Fred Wood hefur ritað sögu íslenskra mormóna sem fluttu til Utah upp úr miðri 19. öld, í bókinni Eldur á ís, var í viðtali við Kastljós í vikunni þar sem hann ræddi þessi tengsl.