1.5.2009 | 12:24

Opið á Gljúfrasteini í dag 1. maí

Safnið er opið frá 10-17 í dag.

Í tilefni dagsins er ekki úr vegi að  birta eitt af þekktari ljóðum Halldórs Laxness Maístjörnuna. Flestir þekkja ljóðið við lag Jóns Ásgeirssonar og þau eru ófá skólabörnin sem hafa sungið það hárri raust. Halldór Laxness leggur ljóðið í munn Ólafs Kárasonar í bókinni Heimsljós.


Sjálfur sagðist Halldór hafa ort kvæðið rétt fyrir 1. maí 1937


Maístjarnan
Ó hve létt er þitt skóhljóð
ó hve leingi ég beið þín,
það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín,
en ég veit eina stjörnu,
eina stjörnu sem skín,
og nú loks ertu komin,
þú ert komin til mín.

Það eru erfiðir tímar,
það er atvinnuþref,
ég hef ekkert að bjóða,
ekki ögn sem ég gef,
nema von mína og líf mitt
hvort ég vaki eða sef,
þetta eitt sem þú gafst mér
það er alt sem ég hef.

En í kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi manns,
og á morgun skín maísól,
það er maísólin hans,
það er maísólin okkar,
okkar einíngarbands,
fyrir þér ber ég fána
þessa framtíðarlands.

Áhugasömum er bent á þátt Hauks Ingvarssonar um Maístjörnuna sem er á dagskrá Ríkisútvarpsins kl. 13. í dag.