24.4.2009 | 12:14

Paradísarheimt verk mánađarins á sunnudaginn


Ólafur Darri Ólafsson mun stýra spjalli um Paradísarheimt sunnudaginn 26. apríl klukkan 16. Eins og áður er aðgangur ókeypis.

Paradísarheimt kom út samtímis á Íslandi og í Svíþjóð árið 1960. Síðar sama ár var hún gefin út í Danmörku og Noregi og árið 1962 í Bretlandi og Bandaríkjunum. Þetta sýnir glögglega stöðu Halldórs Laxness í bókmenntaheiminum í kjölfar þess að hann fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.


Sagan af Steinari bónda Steinssyni í Steinum undir Steinahlíðum átti sér langan aðdraganda. Sjálfur skrifaði Halldór: „Haustið 1927 þegar ég stóð í fyrsta sinni andspænis musterinu í Salt Lake City með hásmíðuðum turnum sínum þráðbeinum upp og ofan... þá kom upp í hug minn sagan sem ég hafði lesið af tilviljun dreingur, um pílagrímsfarir lítils karls um veröldina í leit að fyrirheitna landinu, og ef hægt var, enn meiri raunir sem fólk hans rataði í eftir að hann var farinn. Ég vissi ekki fyr en ég var farinn að leiða saman þessa sögu við sjálfan veruleikann. Hugmyndin hélt síðan áfram að sækja á mig í meira en þrjátíu ár.“

Helstu persónur bókarinnar eiga sér sögulegar fyrirmyndir, kveikjan að sögunni er ferðasaga Eiríks Ólafssonar á Brúnum sem hélt til Utah til að kynnast mormónum.