22.4.2009 | 14:26

Fæðingardagur Halldórs Laxness er í dag

Halldór við skriftir í vinnustofu sinni

Halldór við skriftir í vinnustofu sinni á Gljúfrasteini

Halldór Laxness fæddist þann 23. apríl 1902 á Laugavegi 32 í Reykjavík en fluttist þriggja ára gamall að Laxnesi í Mosfellsdal.

Í dag eru liðin 107 ár frá fæðingu skáldsins. Eftir hann liggur fjöldi ritverka sem mörg hver skipa sérstakan sess í bókmenntasögu þjóðarinnar. Gljúfrasteinn hefur verið opin sem safn Halldórs Laxness frá 4. september 2004.

Í ár ber afmælisdagur skáldsins upp á sumardaginn fyrsta. 


Erfingjar skáldsins undirrita nýjan samning við Vöku-Helgafell um útgáfu verka hans á komandi árum. Til að fagna undirrituninni kemur Sjöstafakverið út í kilju þennan sama dag. Bókin verður seld á aðeins 499 krónur.   

Jafnframt verður öllum landsmönnum gert kleift að hala niður án endurgjalds lestri Halldórs á Atómstöðinni á vef Forlagsins  á tímabilinu 23. apríl til 1. maí.

Alþjóðlegur dagur bókarinnar er einnig í dag sem jafnframt er dánardægur William Shakespeares og Miguel de Cervantes.


Athugið að safnið verður lokað milli klukkan 13-15 í dag.