16.4.2009 | 11:38

Ferðafagnaður á Gljúfrasteini

Halldór við steininn sem húsið er nefnt eftir. Grímannsfell í baksýn

Halldór við steininn sem húsið er nefnt eftir. Grímannsfell í baksýn

Laugardaginn 18. apríl mun Gljúfrasteinn ásamt fjölmörgum öðrum taka þátt í Ferðafagnaði sem skipulagður er af Höfuðborgarstofu. Hér má sjá dagskrá dagsins.


Ferðafagnaður er hátíð ferðaþjónustunnar. Fjölmargir aðilar kynna það sem þeir bjóða upp á og það er margt í boði: Ævintýraferðir, litbolti, sjóstöng, útsýnisflug, fjórhjólaferðir, fræðslugöngur og auðvitað heimsóknir á söfn.
Með þessu er verið að gefa fólki tækifæri að kynna sér fjölbreytta möguleika í ferðaþjónustu og menningu sem bjóðast í nánasta umhverfi.

Hér á Gljúfrasteini verður opið eins og venjulega frá 10 til 17 og í tilefni dagsins er aðgangur ókeypis. Allir velkomnir.