Halldór í vinnuherberginu.

Halldór Laxness var annálaður upplesari, bæði á eigin verkum og annarra. Lestur hans í útvarpi á skáldsögum sínum vakti ævinlega athygli og þá þótti hann gefa verkum annarra sem hann las nýja vídd. Hér má heyra upptökur af upplestri Halldórs úr Ríkisútvarpinu frá ýmsum tímum.

Úr Kvæðakveri. Upptaka frá 1949
Bráðum kemur betri tíð

Úr Brekkukotsannál. Upptaka frá 1963-64
Konferensráðið

Úr Sjöstafakveri. Upptaka frá 1975.
Jón í Brauðhúsum

Úr Í túninu heima. Upptaka frá 1987
Að skrifa uppúr sér