Andrej Kúrkov hlýtur Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness

23/08 2022

Andrej Kúrkov er handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness árið 2022.

Úkraínski rithöfundurinn Andrej Kúrkov er handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness árið 2022. Hann mun veita verðlaununum viðtöku þann 7. september næstkomandi í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Þá mun Kúrkov flytja fyrirlestur Halldórs Laxness. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra afhendir verðlaunin sem nú verða veitt í þriðja sinn. Fyrri verðlaunahafar eru rithöfundarnir Ian McEwan og Elif Shafak. Viðburðurinn hefst kl. 16 og er öllum opinn.

Andrej Kúrkov sló í gegn með bókinni Dauðinn og mörgæsin sem gerði hann að þekktasta samtímahöfundi Úkraínumanna. Bókin kom út í íslenskri þýðingu Áslaugar Agnarsdóttur hjá Bjarti árið 2005 og var endurútgefin vorið 2022. Kúrkov er afkastamikill rithöfundur og hafa bækur hans komið út á 42 tungumálum. Á þessu ári kemur út bók með dagbókarskrifum hans sem hófust í aðdraganda innrásar Rússa í Úkraínu. Bókina skrifar hann á ensku og ber hún heitið Diary of an Invasion

Verðlaunin eru veitt alþjóðlega þekktum rithöfundi fyrir að stuðla að endurnýjun sagnalistar með verkum sínum, en fyrir það hlaut Halldór sjálfur Nóbelsverðlaunin á sínum tíma. Að verðlaununum standa Forsætisráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Íslandsstofa, Bókmenntahátíð í Reykjavík, Gljúfrasteinn og Forlagið. Í valnefnd verðlaunanna að þessu sinni voru Egill Helgason fjölmiðlamaður, Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík og Elif Shafak, handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2021. 

Hér má sjá viðtal við Kúrkov í Kiljunni frá því í apríl síðastliðnum.