Upplestur 11. desember: Saknaðarilmur, Útsýni, Guli kafbáturinn og Tól
06/12 2022Á aðventunni lesa höfundar upp úr nýjum bókum á Gljúfrasteini. Jólabókaflóðið er aldeilis spennandi í ár og Gljúfrasteinn fer ekki varhluta af því. Þriðja sunnudag í aðventu, þann 11. desember, munu eftirtaldir höfundar lesa upp úr verkum sínum:
Elísabet Jökulsdóttir - Saknaðarilmur
Guðrún Eva Mínervudóttir - Útsýni
Jón Kalman - Guli kafbáturinn
Kristín Eiríksdóttir - Tól
Upplestrar fara fram á hverjum sunnudegi á aðventunni klukkan 15. Dagskráin stendur í klukkutíma. Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin.
Njótum aðventunnar á Gljúfrasteini.

Kristín Eiríksdóttir, Guðrún Eva Mínervudóttir, Jón Kalman og Elísabet Jökulsdóttir lesa upp á Gljúfrasteini sunnudaginn 11. desember.