Til þín, María II

22/06 2026

Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk kemur fram næsta sunnudag í stofunni á Gljúfrasteini. Innblástur tónleikanna er bók Elsu E. Guðjónsson, Með verkum handanna sem Þjóðminjasafn Íslands gaf út árið 2023 og þá sérstaklega Maríuklæðið frá Reykjahlíð í Mývatnssveit frá 15. öld sem fjallað er um í bókinni sem selt var úr landi árið 1817 og varðveitt er í Þjóðminjasafni Danmerkur í Kaupmannahöfn. Refilsaumur kallast á við Maríusöngva úr íslenskum handritum, brot úr Maríu sögu frá 14. öld, ljóðabók Sonju B. Jónsdóttur Í myrkrinu fór ég til Maríu og tónverk eftir ítölsku nunnuna og tónskáldið Isabellu Leonarda.

Flytjendur Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk:
Diljá Sigursveinsdóttir, söngur, barokkfiðla og upplestur
Anna Hugadóttir: barokkvíóla
Sólveig Thoroddsen, barokkharpa
Sergio Coto Blanco, theorba

Öll eru hjartanlega velkomin. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og aðgangseyrir er 3.900 krónur. Miðar eru seldir í afgreiðslu Gljúfrasteins.

Sólveig Thoroddsen, Anna Hugadóttir,Diljá Sigursveinsdóttir og Sergio Coto Blanco.