Kristín Anna - Svar við bréfi Helgu
23/08 2026Kristín Anna mun flytja lög eftir sjálfa sig og aðra á stofutónleikum Gljúfrasteins 23. ágúst.
Hún mun flétta eigin tónlist og annarra við tónlistina sem hún samdi fyrir kvikmyndina ,,Svar við bréfi Helgu” en sú tónlist kom út í sumar undir merkjum amerísku útgáfunnar Sono Luminus. Kristín Anna mun leika á flygil, gítar og rödd.
Kristín Anna Valtýsdóttir er listamaður, tónskáld og tónlistarkennari. Hún var meðlimur Hljómsveitarinnar múm á árunum 1998-2006 og harmónikkuleikari í Stórsveit Nix Noltes til fjölda ára. Hún hefur samið og flutt tónlist og gjörninga undir eigin nafni eða sem Kría Brekkan. Kristín Anna hefur starfað með fjölda alþjóðlegra listamanna í ýmsum greinum sköpunarinnar; leikhúsi, dansi, útvarpsleikhúsi, kvikmyndum, gjörningum og myndlistarinnsetningum. Hún hefur unnið mikið og náið með listamaninnum Ragnari Kjartanssyni að gjörningalist og birst í fjölda vídeó-innsetninga hans.
Miðar eru afgreiddir á tónleikadaginn í afgreiðslu safnsins og er miðaverðið 3900 kr.
Hér má finna viðburðinn á facebook
Hér eru upplýsingar um alla stofutónleika Gljúfrasteins 2026
Gestum er bent á að hægt er að leggja bílum við Jónstótt við Gljúfrastein.