Skrýtnastur er maður sjálfur
22/05 2025Skrýtnastur er maður sjálfur er yfirskrift örsýningar sem opnar 25. maí í móttöku Gljúfrasteins og mun verða uppi í sumar og standa fram í september.
Á sýningunni getur að líta forvitnileg listaverk, tengd persónu og ímynd Halldórs Laxness. Verkin eru eftir íslenska og erlenda listamenn. Þarna birtist skáldið með augum þeirra, stundum óþekkjanlegur en oftar en ekki þekkjanlegur. Halldór fékk Nóbelsverðlaunin árið 1955. Í ár eru því 70 ár frá því hann hlaut þessi virtu bókmenntaverðlaun og má sjá vísun í þau tímamót á sýningunni.
Heiti sýningarinnar vísar í grein Halldórs úr bókinni Úngur ég var, sem kom út árið 1976. Bók Auðar Jónsdóttur, sem hún skrifaði um afa sinn 2016, ber líka heitið Skrýtnastur er maður sjálfur.
Um sýningagerð sáu Unnar Örn myndlistamaður og Guðný Dóra Gestsdóttir safnstjóri.

Nóbelsverðlaun, 2020
Þorvaldur Jónsson (1984)
Eigandi verks: Safnasafnið, Svalbarðseyri