Rakel Sigurðardóttir á Gljúfrasteini
06/07 2026Rakel Sigurðardóttir kemur fram næsta sunnudag í stofunni á Gljúfrasteini.
Rakel Sigurðardóttir hefur verið hluti af íslensku tónlistarsenunni í þónokkur ár. Tónlistin hennar hefur reglulega
ratað á vinsældarlista hér á landi, hún komið fram og ferðast um heiminn með fjölmörgum þjóðþekktum
tónlistarmönnum og hljómsveitum.
Árið 2025 gerði hún plötusamning við útgáfufyrirtæki Ólafs Arnalds, OPIA Community og gaf út plötuna ‘a place to be’.
Platan hefur hlotið mikið lof bæði á Íslandi sem og erlendis, en platan hlaut t.a.m. Kraumsverðlaunin 2025
og tilnefningu sem plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár. Rakel hlaut einnig verðlaun sem flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Öll eru hjartanlega velkomin. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og aðgangseyrir er 3.900 krónur. Miðar eru seldir í afgreiðslu Gljúfrasteins.