Móðir mín í kví, kví

05/07 2026

Rannveig Káradóttir mun flytja einleikinn Móðir mín í kví, kví við undirspil Hrannar Þráinsdóttur píanóleikara þann 5. júlí kl 16:00.  

Móðir mín í kví, kví er sunginn einleikur byggður á samnefndri þjóðsögu og þjóðlagi sem geymir eina sárustu sögu íslenskrar þjóðar. Frásögn sem ber vitni um blákaldan raunveruleika sem óteljandi  stúlkur og konur hafa þurft að standa frammi fyrir frá örófi alda. Verkið er stytt útgáfa af sköpunarverki Rannveigar, sviðslistaverkinu mother:land, sem var frumflutt í Landestheater Coburg í Þýskandi 2023 og á íslenskri grund í Hörpu á Óperudögum 2024. Í þetta sinn þarf enga leikmynd því leikmyndin er stofan sjálf á Gljúfrasteini og ekki er hægt að hugsa sér fullkomnari umgjörð. Fjölmörg ljóðanna eru einmitt eftir húsráðandann, Halldór Laxness, og eru þau fléttuð saman við önnur íslensk þjóð- og sönglög til að skapa eina heild sem spannar allt tilfinningalitrófið.

Rannveig Káradóttir hóf ung tónlistarnám á píanó, flautu og söng í Tónlistarskóla Garðabæjar og lærði síðan klassískan söng hjá Alínu Dubik við Tónlistarskólann í Reykjavík. Stuttu fyrir burtfararpróf fór hún með hlutverk Anninu í uppfærslu Íslensku óperunnar á La traviata og nam um tíma hjá Kristjáni Jóhannssyni á Ítalíu. Árið 2012 hlaut hún inngöngu og styrk til meistaranáms við Royal College of Music í London, þaðan sem hún útskrifaðist með láði árið 2014. Rannveig er Britten Pears Young Artist og söng meðal annars hlutverk Poppeu í L'incoronazione di Poppea á Aldeburgh-tónlistarhátíðinni undir stjórn Richards Egarr. Á árunum 2014–2018 fór hún með burðarhlutverk á borð við Violettu í La traviata, Mimì í La Bohème og Cio-Cio-San í Madama Butterfly á sviðum víða um Bretland og Evrópu. Frá 2018 til 2023 var Rannveig fastráðin við Landestheater Coburg í Þýskalandi, þar sem hún söng meðal annars Fiordiligi í Così fan tutte, Fedoru í óperettunni Die Zirkusprinzessin og Lauru í Neues vom Tage. Ást hennar á íslenskum sönglögum varð til þess að hún gaf út diskinn Krot — Íslensk sönglög árið 2016. Rannveig syngur líka djass og kemur reglulega fram í Þýskalandi og á Íslandi.  

Hrönn Þráinsdóttir stundaði framhaldsnám við píanóleik við Staatliche Hochschule für Musik í Freiburg og lauk þaðan diplóma kennaraprófi vorið 2004 og tók meðleik við ljóðasöng sem aukafag. Kennarar hennar voru Dr.Tibor Szász og Hans-Peter Müller. Að því loknu nam hún við ljóðasöngdeild Tónlistarháskólans í Stuttgart undir handleiðslu Cornelis Witthoefft og lauk sérhæfðu diplómanámi sumarið 2007. Hrönn hefur komið fram á tónleikum víða sem einleikari, meðleikari og við flutning kammertónlistar auk þess að hafa hljóðritað fyrir útvarp og leikið inn á geisladiska. Hún hefur verið virk í uppeldisstarfi ungra söngvara, verið tónlistarstjóri uppfærslna síðustu ára hjá óperudeild Söngskólans í Reykjavík þar sem fluttar hafa verið perlur óperubókmenntanna. Hún hefur einnig ferðast víða um land síðustu misseri og kynnt óperutónlist og hið íslenska sönglag fyrir grunnskólabörn í öllum landshlutum. Hún er einn helsti meðleikari óperusöngvara á Íslandi og hefur verið afar virk í tónleikahaldi á Íslandi. Hrönn er kennari við Söngskólann í Reykjavík, Söngskóla Sigurðar Demetz og við Menntaskóla í tónlist, MÍT.  

Öll eru hjartanlega velkomin. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og aðgangseyrir er 3.900 krónur. Miðar eru seldir í afgreiðslu Gljúfrasteins.

Hér eru upplýsingar um staðsetningu safnsins, aðgengi og bílastæði.

Hér eru upplýsingar um alla stofutónleika Gljúfrasteins 2026.

Myndina af Rannveigu tók Sylvain Guillot.
Myndina af Hrönn tók Francisco Javier Jáuregui Narváez.